Upplifum kenía janúar 2026 

Einstakt tækifæri til að upplifa kenía með heimafólki á frábæru verði!

Ferðalýsing 

Við bjóðum upp á ferðir til Kenía á einstaklega góðu verði. Með áralanga reynslu og innsýn inn í kenískt samfélag bjóðum við upp á fjölbreyttar sérsniðnar ferðir þangað. Ferðirnar okkar eru mikil upplifun og ævintýri sem er samofin af náttúrufegurð, dýralífi og menningu Kenía. Ferðamenn fá að kynnast landi og þjóð á einstakan, persónulegan hátt, bæði í höfuðborginni Nairobi og á landsbyggðinni auk þess að kynnast skólastarfi sem Íslenska barnahjálpin rekur.

Ferðin hefst í Nairobi, sem oft er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar kynnumst við ýmsum hliðum borgarinnar, förum á söfn, te,- og kaffiræktarsvæði, skemmtilega veitingastaði og heimsækjum Harvestskólana sem Íslenska barnahjálpin starfrækir í fákærahverfum Nairobi. Gist verður á gistiheimili sem Íslenska barnahjálpin rekur í fallegu lokuðu hverfi.  Frá Nairobi er haldið í friðsælu sveitina í Loitoktok við rætur Kilimanjaro þar sem gist verður í nýbyggðu gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar. Þar er mjög góð aðstaða fyrir alla; herbergin með sérbaðherbi, stór verönd með ægifögru útsýni, kenískur matur eldaður og varðeldur kveiktur á kvöldin.
Við heimsækjum framhaldsskóla sem Íslenska barnahjálpin rekur á svæðinu, kynnumst menningu nemenda og siðum og heimsækjum fjölskyldur þeirra.
Tveir flottustu Safarí þjóðgarðar Kenía verða skoðaðir og ferðin endar á ströndinni við Indlandshaf í Mombasa.

Heildarverð er 560.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi.
Aukakostnaður fyrir einn í herbergi er 45.000 kr.
Innifalið: Flug til Kenía. Öll gisting, allur akstur, lestir og innanlandsflug. Tvær máltíðir á dag í Nairobi, þrjár máltíðir á dag í Loitoktok og safaríferð, tvær máltíðir á ströndinni. Aðgangseyrir í þjóðgarða og söfn.
Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Máltíðir á veitingahúsum, kaffihúsum og lest. Drykkir á hótelum, þjórfé og bátsferð.
Fararstjóri: Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í yfir 18 ár og Ingveldur Ýr formaður Íslensku barnahjálparinnar.


Ferðaplan:

Dagur 1. Laugardagur 10. janúar
Flogið frá Íslandi í gegnum Oslo og áfram með Qatar airways.

Dagur 2. Sunnudagur 11. janúar Lending í Nairobi.
Gist verður á Harvest gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar.

Nairobi

Dagur 3. Mánudagur 12. janúar    

Við tökum okkur tíma til að kynnast heimafólki. Um morguninn fáum við fræðslu frá skemmtilegum fyrirlesara um Keníska menningu. Eftir hádegi verður heimsókn í Harvestskólann í Kariobangi sem Íslenska barnahjálpin rekur. Þar munum við upplifa einstakar kenískar móttökur.
Við borðum kvöldmat heima í húsi.

Dagur 4. Þriðjudagur 13. janúar     
Við heimsækjum Harvestskólann og kynnum okkur skólastarfið betur. Kennarar og starfsfólk taka á móti okkur og við munum líta inn í kennslustundir. Einnig taka nokkrir nemendur skólans á móti okkur á heimilum sínum. Stuðningsaðilar munu fá að heimsækja börnin sín.
Við borðum á skemmtilegum veitingastað um kvöldið.

Dagur 5. Miðvikudagur 14. janúar
Við keyrum til suður-Nairobi á Karen Langatta svæðið.
Við heimsækjum þar gíraffagarðinn og Karen Blixen safnið og borðum á góðum veitingastað í hádeginu.
Kvöldmatur heima í húsi.

Dagur 6. Fimmtudagur 15. janúar 
Við tökum daginn snemma og förum á Þjóðminjasafnið og í snákagarð og kíkjum síðan í indverska hverfið. Um kvöldið verður farið á Safari park hótelið í stóra grillveislu og danssýningu.

Dagur 7. Föstudagur 16. janúar
Við skoðum teakrana í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Við heimsækjum býlið þar sem te var fyrst ræktað í Kenía, fræðumst um te og smökkum og borðum heimagerðan hádegismat á býlinu.
Eftir túrinn förum við í Village market verslunarmiðstöðina.

Dagur 8. Laugardagur 17. janúar
Þennan morgun keyrum við til Loitoktok. Við gistum í Ol-doinyo house sem er nýtt gistihús Íslensku barnahjálparinnar og borðum þar hádegismat.
Eftir hádegi förum við í heimsókn í skólann sem er þar í göngufæri.
Kvöldmatur heima í húsi og varðeldur.

Dagur 9. Sunnudagur 18. janúar
Við byrjum daginn á því að sækja sunnudagsmessu nemenda skólans. Það er ótrúlega skemmtileg upplifun. Við kynnumst nemendum betur og eyðum smá tíma með þeim. Förum í leiki og lærum dansa. Seinnipartinn keyrum við út í byggðirnar og heimsækjum Masaai fólkið í þeirra heimabyggð. Varðeldur um kvöldið.

Safarí: Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 10. Mánudagur 19. janúar
Amboseli þjóðgarðurinn liggur við rætur Kilimanjaro. Hann er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins. Snemma um morguninn förum við í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um kl. 12.30 förum við á hótel í garðinum og borðum þar hádegismat. Þeir sem vilja geta farið í laugina. Við slökum á á hótelinu til um kl. 15.30. Þá förum við aftur á stjá að skoða dýralífið. Reynum að koma auga á ljón. Við förum út úr garðinum um kl. 18.30 og gistum heima í húsi.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 11. Þriðjudagur 20. janúar
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Dagur 12. Miðvikudagur 21. janúar
Við leggjum af stað frá hótelinu um morguninn og höldum í átt að Ngutuni Lodge þar sem við komum um miðjan dag. Þar er frábært tækifæri til að fylgjast með dýrunum við vatnsbólið, fara í sund og jafnvel fara í smá safarí akstur til að reyna að koma auga á ljón.

Keníska ströndin - Indlandshafið

Dagur 13. Fimmtudagur 22. janúar
Við höldum ferðalaginu áfram niður að Indlandshafinu. Þar munum við gista á flottu fjögurra stjörnu hóteli við ströndina með öllum gæðum.

Dagur 14. Föstudagur 23. janúar
Slökunardagur á hótelinu. Hægt er að nota tímann til dæmis fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl eða fara á bak á kameldýri á ströndinni.
Kvöldmatur á hótelinu eða við förum út að borða á spennandi stað.

Dagur 15. Laugardagur 24. janúar
Frjáls dagur og tími til að gera allt það sem ekki náðist að gera daginn áður. Fara í skoðunarferð eða slaka á við ströndina. Kvöldmatur á hótelinu.

Dagur 16. Sunnudagur 25. Janúar  
Eftir morgunmatinn kl. 10:00 tékkum við út af hótelinu og förum í skoðunarferð til borgarinnar Mombasa. Þar skoðum við gamla bæinn og fræðumst um merkilega sögu.
Seinnipartinn tökum við klukkutíma flug til Nairobi.
Flug aftur til Íslands um kvöldið með Qatar í gegnum Oslo.


Dagur 17. Mánudagur 26. Janúar Lending í Keflavík.