Hagnýtar Ferðaupplýsingar
Vegabréfsáritun: Íslendingar þurfa vegabréfsáritun til Kenía og fer umsóknin fram á netinu. Hægt er að fá áritun með 7 daga fyrirvara og kostar hún USD 32. Ferðasýn leiðbeinir farþegum varðandi umsókn og fylgiskjöl.
ATH! Passi þarf að vera með a.m.k 6 mánaða gildistíma til þess að áritun fáist.
Bólusetningar: Það er ráðlegt að fara í bólusetningar fyrir ferðalag til Kenía. Hjá Heilsuveru fær viðkomandi sína bólusetningaráætlun. Helst er bólusett við lifrarbólgu, typhoid salmonellu og stífkrampa.
Moskítóflugur og malaría: Það er lítið af moskítóflugum á þeim svæðum þar sem við ferðumst, en þó eitthvað. Sú tegund af moskítóflugum sem ber malaríu á milli manna lifir ekki á hálendi eins og í Nairobi eða Loitoktok þar sem við ferðumst mest. Það er því ekki þörf á að taka malaríutöflur á þeim svæðum. Tegundin getur þó fundist á láglendi eins og við ströndina en líkurnar á að vera bitinn af sýktri flugu þar eru þó sáralitlar.
Tryggingar: Við ráðleggjum öllum að vera með ferðatryggingu og hafa trygginguna útprentaða.
Ferðatryggingar eru ekki dýrar og í þeim felst mikið öryggi.
Kreditkort bjóða einnig uppá tryggingar en mikilvægt að afla sér upplýsinga um þær áður en lagt er af stað.
Veðurfar og hitastig: Í Kenía er almennt þægilegt hitastig og ferðir okkar eru ávallt skipulagðar þegar ekki er rigningatímabil. Nairobi er staðsett í 1600 metra hæð og þar er því milt og þægilegt hitastig allan ársins hring, eða um 22-27 gráður á daginn og 14-16 gráður á kvöldin, mismunandi eftir árstíðum. Það sama gildir um Loitoktok við rætur Kilimanjaro, en þar er þó aðeins kaldara á kvöldin. Við Indlandshafið er heitara loftslag, um 28-33 gráður á daginn og 21-24 gráður á kvöldin.
Heilsugæsla og sjúkrahús: Það er mjög gott aðgengi að góðum sjúkrahúsum og læknum í Nairobi og við ströndina.
Þegar farið er í safari þá er það eins og í sveitinni á Íslandi, lengra á spítalann en samt alltaf hægt að keyra í bæinn.
Flug: Það eru margar flugleiðir til Kenía, alltaf tveir leggir eða þrír. Við veljum hagstæðasta, en líka þægilegasta kostinn hverju sinni. Með þremur leggjum er flogið í einum rykk frá Íslandi og er það oft ódýrara, t.d. með Qatar airways, Turkish airways eða Emirates. Ef ferðin inniheldur eru tvo leggi er flogið til Evrópuborgar og gist eina nótt áður en haldið er áfram til Nairobi t.d. með British Airways frá London, Lufthansa frá Frankfurt, KLM og Kenya Airways frá Amsterdam, og Air France og Kenya Airways frá París. Beinu flugin eru um 8 til 9 tímar og býður þessi möguleiki upp á að flugin séu aðeins tvö.
Öll þessi flugfélög eru mjög góð með breiðþotum, nóg af mat og skemmtun í vélunum og góð farangursheimild.
Fyrir þær ferðir sem eru ekki með innifalið flug þá getum við komið því við að flugmiðar séu keyptir saman. Þannig getum við ferðast saman sem hópur ef þess er óskað.
Gjaldeyrir: Gjaldmiðillinn í Kenía er Kenya shilling = KSH.
Hann er mjög nálægt íslensku krónunni að gildi. 1000 KSH eru um 1000 ÍSK.
Það er hægt að borga með korti í flestum búðum og á veitingastöðum allstaðar gott aðgengi að öruggum hraðbönkum.
Klæðnaður: Í Kenía er almennt snyrtilegur klæðnaður (Casual smart). Hafa skal í huga að flestar ferðir okkar eru um ólík veðursvæði og nokkrir af áfangastöðum okkar eru í 1600 metra hæð en líka við Indlandshafsströndina. Það er því mikilvægt að hafa með einhvern hlífðarfatnað td. á kvöldin en einnig sumarföt. Á ferðalögum út á land og í safarí getur líka verið þurrt og rykugt. Gott er að hafa með sér inniskó.
Annað: Flest flugfélög eru með heimild fyrir tveimur ferðatöskum og handfarangur.
Drykkjarvatn er í drykkjarvatnstönkum og kranavatn ekki ætlað til drykkju en ekki hættulegt.
Enska er opinbert tungumál ásamt K-Swahili.
Gott er að pakka eftirfarandi: sólarvörn, Lóritín lyf, vatnsbrúsa, inniskó, sundföt. Allt fæst þetta í Nairobi en síður úti á landi.