Ferðir framundan:

Golf og safarí 3.-16. október 2026

Vellirnir

Það er mikil hefð fyrir golfi í Kenía því Bretar komu með golfið til Kenía og fyrsti golfvöllurinn var byggður þar árið 1913. Vellirnir eru sérlega fallegir í náttúrulegu umhverfi með skemmtilegum sérkennum og áskorunum. Á öllum völlum er spilað með caddýum sem eru sjálfir reyndir golfarar og þekkja vellina út og inn. Loftslagið í Nairobi er sérlega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 1600-1700 metra hæð og því verður aldrei of heitt. Hitastigið er að meðaltali frá um 15 gráðum á nóttunni upp í 23- 27 gráður eftir hádegi. Þunna loftið í þessari hæð gerir það að verkum að golfkúlan svífur að jafnaði 10 metrum lengra.

Windsorvöllurinn

Windsor er sérlega fallegur golfvöllur. Hann er par 72 og liggur í gegnum skóglendi og gamlar kaffiekrur þar sem er mikið fugla og dýralíf.
Apar eru fastagestir á vellinum. Skógurinn gerir það að verkum að næsta hola kemur aðeins í ljós við komu á næsta teig, fyrir utan holu 1 og 18 sem eru á opnum grænum bölum. Það eru vel yfir sjötíu glompur á vellinum.

Muthaiga golfklúbburinn

Muthaiga er í um 8 mínútna akstur frá Windsor. Þessi völlur er metinn besti völlurinn í Nairobi og þar er Kenya open golfkeppnin haldin árlega. Fyrstu 9 holurnar voru gerðar árið 1913 og árið 1926 var völlurinn stækkaður á 18 holur. Hann var svo endurhannaður á árunum 2004 til 2005 af suður-afríska arkitektinum Peter Matkovich. Muthaiga völlurinn liggur í gegnum Karura skóglendið en er opnari en Windsor völlurinn. Töluvert er af tjörnum og vötnum.

Karen GolfKlúbburinn

Karen völlurinn er í suðurhluta Nairobi og er staðsettur á fyrrum kaffiekrum Karenar Blixen, hins heimsfræga danska rithöfunds. Hún plantaði þar trjám sem enn er að finna á vellinum í dag. Karen Country Club var stofnaður árið 1937, sama ár og bókin Out of Africa kom út. Völlurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur og einnig þekktur fyrir litskrúðug blómstrandi tré og runna. Hann liggur um votlendi þar sem er að finna mikið fuglalíf og litlar dikdik antilópur. Sjá má Ngong hæðir í bakgrunni.

Keníska ströndin - Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur við strönd Indlandshafs og er einn af bestu golfvöllunum í Kenía. Hann hefur PGA vottun og Kenya womens open er haldið þar árlega. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa.

“Kenía er engri lík!”

“Ferðin með Ferðasýn var svo miklu meira en bara golfferð þó vissulega væru vellirnir fyrsta flokks og allar aðstæður til fyrirmyndar. Nálægðin við fíla, gíraffa, sebrahesta og öll hin hitabeltisdýrin í safaríunum var mögnuð upplifun. Áhrifaríkust voru þó kynnin af fólkinu sjálfu, menningu þess og aðstæðum. Keníabúar eru með eindæmum gestrisnir, hlýir, kurteisir og léttir í lund. Börnin stálu hjarta mínu með kurteisi sinni, dugnaði og jákvæðni gagnvart því að deila kenískri menningu með gestunum.”

Anna Gunnhildur Ólafsdóttir

Golfferð páskar 2027

Golf og safarí

Kenía er töfrandi land að heimsækja. Ferðirnar okkar henta sérstaklega vel þeim sem elska að spila frábært golf og kynnast einnig menningu og náttúru landsins í leiðinni. Við byrjum í höfuðborginni Nairobi, sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar er að finna einstaklega fallega golfvelli, skemmtilega veitingastaði og kaffihús, flott söfn og magnað fjölbreytt mannlíf. Þaðan höldum við í safarí í þjóðgarðana Tsavo west og Amboseli. Auk þess heimsækjum við Loitoktok við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Við endum svo á hinum fagra Vipingo Ridge golf club sem staðsettur er við strönd Indlandshafs.

Áramótagolf og safarí 26. desember 2026