Ævintýra Golf og safaríferð 13.-29. Mars 2027

Verð: 790.000 kr á mann í tveggja manna herbergi 890.000 kr fyrir einstaklingsherbergi

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! Davor Purusic”

Kenía er töfrandi land að heimsækja. Í þessari ferð spilum við frábært golf ásamt því að kynnast við landi og þjóð á einstakan hátt. Við byrjum í höfuðborginni Nairobi, sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar er að finna einstaklega fallega golfvelli, skemmtilega veitingastaði og kaffihús, flott söfn og magnað fjölbreytt mannlíf. Þaðan höldum við í safarí í þjóðgarðana Tsavo west og Amboseli. Auk þess heimsækjum við Loitoktok við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Við endum svo á hinum fagra Vipingo Ridge golf club sem staðsettur er við strönd Indlandshafs.

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gamaldags breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og þrír veitingastaðir. Hægt er að spila með bæði caddy og golfbíl.

Loftslagið í Nairobi er sérlega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 1600-1700 metra hæð og því verður aldrei of heitt. Hitastigið í október er frá um 17 gráðum á nóttunni og upp í um 26 gráður eftir hádegi. Þunna loftið í þessari hæð gerir það að verkum að golfkúlan svífur að jafnaði 10 metrum lengra. Það er mikil hefð fyrir golfi í Kenía því Bretar komu með golfið til Kenía og fyrsti golfvöllurinn var byggður þar árið 1913. Vellirnir eru sérlega fallegir í náttúrulegu umhverfi með skemmtilegum sérkennum og áskorunum. Á öllum völlum er spilað með caddýum sem eru sjálfir reyndir golfarar og þekkja vellina út og inn. 

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting í London. Gisting með hálfu fæði á golfhóteli Nairobi og í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy og golfbíl í Vipingo. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Gisting með fullu fæði í safarí, safaríbílar, aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Innanlandsflug og lest.

Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi og Vipingo. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn, teskoðunarferð og kaffiskoðunarferð. 

Aukagjald fyrir einn í herbergi: 100.000 kr. Verð án golfs: 690.000 kr.

Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur að mestu búið og starfað í Kenía í 19 ár.

Ferðaáætlun:

Dagur 1 - Laugardagur 13. mars - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til London með British Airways og gist á hóteli í eina nótt.

Dagur 2 - Sunnudagur 14. mars - Flug til Nairobi
Beint flug til Nairobi að morgni og lending í Kenía að kvöldi.
Gisting á Windsor Golf Hotel.

Dagur 3 - Mánudagur 15. mars - Hringur eitt á Windsor.
Eftir golfið er kjörið að fara í smá skoðunarferð um næsta nágrenni.

Dagur 4 - Þriðjudagur 16. mars - Hringur tvö á Windsor.
Eftir hádegi er kjörið að fara í kaffitúr á Hótel Windsor þar sem 500 ekrur af kaffirækt eru á landareigninni. Allt kaffi á Windsor er því ræktað, þurrkað og ristað á staðnum. Einnig er hægt að slaka á við laugina eða fara í spa.

Dagur 5 - Miðvikudagur 17. mars - Hringur þrjú á Windsor.
Frjáls dagur eftir hádegi. Um kvöldið verður farið út að borða.

Dagur 6 - Fimmtudagur 18. mars - Hringur fjögur á Karen golf club.
Við keyrum til suðurhluta Nairobi og tökum hring á Karen golf club. Eftir hádegið heimsækjum við heimili Karenar Blixen, hins fræga danska rithöfundar. Þar var Óskarsverðlaunamyndin “Out of Africa” var tekin upp.

Dagur 7 - Föstudagur 19. mars - Hringur fimm á Muthaiga Golf Club Nú prófum við Muthaiga golfvöllinn, einstaklega glæsilegan völl í fögru skóglendi þar sem Kenya Open er haldið árlega.
Eftir hádegi verður boðið uppá ævintýralega heimsókn í Harvestskólann sem Íslenska barnahjálpin rekur í Nairobi.

Dagur 8 - Laugardagur 20. mars -Tigoni Teræktarsvæðið - Hringur sex
Þennan dag ætlum að við að heimsækja hið geysifagra teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Því verða spilaðar tvisvar sinnum níu holur. Fyrst að morgni og svo seinnipartinn.

Loitoktok

Dagur 9. Sunnudagur 21. mars - Loitoktok
Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og menningu þeirra. Við komuna til Loitoktok bíður hádegisverður í Oldoinoyo house við rætur fjallsins. Eftir hádegi heimsækjum við skóla íslensku barnahjálparinnar og kynnumst þar lífi og menningu nemenda. Kvöldverður og gisting í Oldoinyo house. Varðeldur um kvöldið.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 10 - Mánudagur 22. mars - Safarí í Amboseli
Við vöknum snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn í safarí. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá. Gist á Oldoinyo house um kvöldið.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 11 - Þriðjudagur 23. mars - safarí í Tsavo West 
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn með lest snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar sérlega fögru landslagi. Gisting er á Serena Kilaguni Lodge, sem er einstakt hótel. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, fylgjumst með dýrlífinu, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn er keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur í sérlega fögru landslagi, við strönd Indlandshafs og er einn af bestu golfvöllunum í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa sem gefur vellinum mikinn sjarma. Hann hefur PGA vottun og Kenya Womens Open er haldið þar árlega.

Dagur 12 - Miðvikudagur 24. mars- Vipingo ridge 
Lagt af stað úr Tsavo West þjóðgarðinun og lestin tekin í áttina að ströndinni. Ekið síðasta spölin og koma á Vipingo um kl 15:30. Gisting er í flottum villum á golfvellinum með einkasundlaug.

Dagur 13 - Fimmtudagur 25. mars - Hringur sjö á Vipingo.
Við njótum staðarins

Dagur 14 - Föstudagur 26. mars - Hringur átta á Vipingo.
Við tökum daginn snemma og klárum 18 holur. Við slökum á seinnipartinn og förum út að borða um kvöldið.

Dagur 15 - Laugardagur 27. mars - Hringur níu á Vipingo.
Seinnipartinn er kjörið að skella sér á ströndina og skoða nágrennið.

Dagur 16 - Sunnudagur 28. mars - Hringur tíu á Vipingo.
Eftir hádegi tékkum við út og fljúgum til Nairobi þaðan sem flogið er áfram til íslands um kvöldið í gegnum London. Lendum á Íslandi á mánudagsmorgun 29. mars.

“Kenía er engri lík! Ferðin með Ferðasýn var svo miklu meira en bara golfferð þó vissulega væru vellirnir fyrsta flokks og allar aðstæður til fyrirmyndar. Nálægðin við fíla, gíraffa, sebrahesta og öll hin hitabeltisdýrin í safaríunum var mögnuð upplifun. Áhrifaríkust voru þó kynnin af fólkinu sjálfu, menningu þess og aðstæðum. Keníabúar eru með eindæmum gestrisnir, hlýir, kurteisir og léttir í lund. Börnin stálu hjarta mínu með kurteisi sinni, dugnaði og jákvæðni gagnvart því að deila kenískri menningu með gestunum. Kynni mín af fólkinu í Kenía breytti ekki aðeins skynjun minni á Afríku heldur sjálfri mér. Enginn kemur óbreyttur frá Kenía!  Anna Gunnhildur Ólafsdóttir”