menningin, skólinn og samfélagið - KENNAraferð til kenía 23.júní-9.júlí 2027
Ferðalýsing
Kenía er stórkostlegt land að heimsækja og hér er tækifæri til að kynnast landi og þjóð á einstakan hátt. Við heimsækjum skóla Íslensku barnahjálparinnar og heimsækjum einnig nemendur og foreldra skólans. Við skoðum okkur um í höfuðborginni Nairobi sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Við förum á skemmtilega og framandi veitingastaði, og í boði er t.d. að skoða söfn, fara á afríska markaði, á te- og kaffiræktarsvæði og kynnast ýmsum hliðum á borginni. Við förum í tvo þjóðgarða og endum ferðina við Indlandshafið á Kenísku ströndinni.
Heildarverð með flugi á mann miðað við tvo í herbergi er frá 660.000 kr
(60.000 kr. aukagjald fyrir einn í herbergi)
Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku. Gisting með hálfu fæði í Nairobi, og Mombasa. Gisting með fullu fæði við Kilimanjaro og í safarí. Aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Aðgangseyrir á söfn og teskoðunarferð, og annað sem er tekið fram í ferðaáætlun. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Þar með talið innanlandsflug og lest.
Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi og Mombasa.
Drykkir og þjórfé.
Gisting í Nairobi: Boðið er uppá tvo gistimöguleika í Nairobi. Annarsvegar í gistihúsi Ferðasýnar í fallegu lokuðu hverfi. Gistihúsið er með ellefu svefnherbergjum sem flest eru með sér baðherbergi. Þar er góð setustofa sem gefur okkur tækifæri til samveru, funda og fyrirlestra.
Fyrir þá sem vilja meiri lúxus og njóta þess að gista á glæsilegu fjögurra stjörnu hóteli þá er gisting á Hotel Windsor golf and country club.er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gamaldags breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og þrír veitingastaðir stórt útivistarsvæði með göngustígum og kaffiekra. Aukagjald fyrir 6 nætur á Hotel Windsor er 60,000 kr á mann miðað við tvo í herbergi.
Gisting við Kilimanjaro og safarí er í einkahúsi Ferðasýnar í Loitoktok og safarí hóteli í Tsavo West.
Gisting á Mombasa við Indlandshafið er á fjögurra stjörnu hótelum eða í einkavillum á Vipingo með sundlaug.
Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár og Gunnhildur Gunnarsdóttir, þaulreyndur leiðsögumaður til margra ára.
Ferðaplan:
Dagur 1. Miðvikudagur 23. júní Flogið frá Íslandi, millilent í evrópskri borg og flogið áfram til Nairobi.
Dagur 2. Fimmtudagur 24. júní Lending í Nairobi.
Gist verður á Harvest gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar í Nairobi.
Tími til að ná í nauðsynjar, t.d. kenískt símkort ofl.
Nairobi
Dagur 3. Föstudagur 25. júní - Dagskrá hefst
Fyrir hádegi verður fyrirlestur um skólarekstur í Kenía.
Þórunn Helgadóttir segir frá stofnun Harvestskólanna og þeim áskorunum sem fylgja rekstri þeirra.
Eftir hádegi er heimsókn í Harvestskólana í Kariobangi þar sem eru nemendur á öllum námsstigum, frá 3ja til 19 ára aldurs. Þar upplifum við keníska menningu beint í æð.
Við hittum fyrir kennara og nemendur sem taka á móti gestum á sinn einstaka keníska máta.
Dagur 4. Laugardagur 26. júní - Kenísk menning
Fyrir hádegi verður fyrirlestur frá Penninah Nguli sem er Swahili tungumála og menningarkennari. Penninah hefur margra ára reynslu af því að kenna Vesturlandabúum keníska menningu. Farið verið yfir grunnatriði menningarinnar og hvernig ólík þjóðarbrot með ólík tungumál ná að mynda samfélagslega heild. Hverjar eru samskiptareglurnar hér og hvernig eru þær ólíkar okkar?
Við lærum einnig nokkrar setningar á Swahili.
Eftir hádegismat heimsækjum við heimili nemenda Harvestskólans sem búa í fátækrahverfum Nairobi. Við kynnumst aðstæðum þeirra heima fyrir og fáum tækifæri til að setja það sem við lærðum um morguninn í samhengi.
Dagur 5. Sunnudagur 27. júní - Sveitaferð til Tigoni
Nú skiptum við um gír og skoðum teakrana í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Á leiðinni sjáum við ólík hverfi og mikla náttúrfegurð steinsnar frá borginni. Teræktarsvæðið er draumi líkast með stórum breiðum af te-ökrum og gróðri. Við heimsækjum býli rekið af þriðju kynslóð Breta. Þar var te fyrst ræktað í Kenía á býlinu og upplifunin er eins og að fara tugi ára aftur í tímann. Hér smökkum við og fræðumst um te og borðum dásamlegan heimagerðan hádegismat úr öllu heimaræktuðu á býlinu. Sjón er sögu ríkari!
Eftir heimsóknina er í boði að fara í Village market verslunarmiðstöðina þar sem mikið er af kenísku handverki og fatnaði, en einnig stór matvöruverslun.
Dagur 6. Mánudagur 28. júní- Skóladagur
Þennan dag fara kennarar í Harvestskólann eftir morgunmat. Aðrir gestir geta eftir samkomulagi fengið sérsniðna dagskrá.
Við fáum fyrirlesara frá keníska menntamálaráðuneytinu sem útskýrir þær breytingar á skólakerfinu sem Kenía hefur gengið í gegnum síðustu ár. Búið er að breyta kerfinu talsvert og nýjar áherslur settar í skólakerfinu þar sem ný námsskrá ýtir út þeirri gömlu, eitt ár í senn.
Þessu hafa fylgt ýmsar áskoranir fyrir skólasamfélagið og ýmis verkefni sem menntamálaráðuneytið stendur frammi fyrir.
Eftir hádegismat fara kennarar Harvestskólanna yfir skólastarfið og þau viðfangsefni og vandamál sem því fylgja. Rætt verður um samskipti og samstarf við menntamálaráðuneytið, foreldra og deilda innan skólans. Kennarar verja einnig tíma með kennurum í sínu fagi, fara inn í kennslustundir og kynna sér námsefnið og kennsluna. Auk þess munu íslensku kennararnir deila einnig þekkingu sinni til nemenda og kennara.
Dagur 7. Þriðjudagur 29. júní - Karen Langatta svæðið
Hvíldardagur í Nairobi. Tími til að melta það sem við höfum upplifað og til að skoða aðrar hliðar á borginni.
Við heimsækjum Karen Langatta svæðið, förum í gíraffagarðinn og á Karen Blixen safnið þar sem hin fræga kvikmynd Out of Africa var tekin upp. Borðum á góðum veitingastað í hádeginu.
Frjáls tími seinnipartinn, t.d. verður hægt að fara í miðbæ Nairbobi á Maasaimarkað, á Þjóðminjasafnið eða í verslunarmiðstöð. Kvöldmatur heima í húsi.
Kilimanjaro - Loitoktok
Dagur 8. Miðvikudagur 30. júní - Loitokitok
Leggjum snemma af stað með lest til Loitoktok, þar sem við munum dvelja í Oldonyo gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar og borðum hádegismat þar.
Eftir hádegi förum við í heimsókn í heimavistarskólann í Loitoktok. Í skólanum eru 150 nemendur á aldrinum 14-19 ára. Í Loitoktok býr Masaai fólkið. Það hefur sína eigin menningu og viðhorf, gjörólík menningunni í Nairobi. Nemendur koma þar í skóla þar sem kennt er á allt öðrum tungumálum en þeirra eigin. Ýmis menningarleg áhrif setja líka strik í reikninginn þegar kemur að menntun en aðrir menningarþættir smyrja samskipti og létta lífið.
Dagur 9. Fimmtudagur 1. júlí - Masaai fólkið
Um morguninn förum við í heimsóknir út í sveitirnar til nemenda og foreldra þeirra. Við kynnumst aðstæðum og menningu Masaai fólksins.
Hádegismatur verður heima á gistiheimilinu og fáum svo Susan Moyaso, unga Masaai konu í heimsókn, sem segir frá menningu Masaai fólksins og baráttu sinni við að komast í skóla. Um kvöldið er í boði að taka þátt í kvöldsamkomu nemenda Harvestskólans í Loitoktok.
Dagur 10. Föstudagur 2. júlí - Skólinn
Eftir morgunmat verjum við tíma með nemendum og kennurum skólans. Hver kennari heimsækir sitt fag, fylgist með kennslu og deilir þekkingu sinni og menningu með nemendum og kennurum.
Seinnipartinn verða umræður um Ísland og Kenía sem Þórunn og Gunnhildur leiða. Hvað höfum við lært á þessum dögum? Hvaða samanburð getum við gert á milli þessara þjóðfélaga og hvað höfum við lært af Keníabúum sem við gætum gert betur í okkar eigin skólum og menningu? Fagferð lokið
Safarí: Amboseli Þjóðgarðurinn
Dagur 11. Laugardagur 3. júlí - Amboseli
Snemma að morgni er keyrt af stað í Amboseli þjóðgarðinn sem liggur við rætur Kilimanjaro og er stundum kallaður “fílahöfuðborg heimsins”. Um morguninn förum við í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um hádegisbil förum við á hótelið og tékkum okkur inn og fáum hlaðborð í hádeginu. Seinna í eftirmiðdaginn förum við aftur á stjá að skoða dýralífið og reynum að koma auga á ljón.
Tsavo West þjóðgarðurinn
Dagur 12. Sunnudagur 4. júlí - Tsavo West
Að morgni er lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um hádegi, fáum okkur hádegismat, förum í laugina og njótum þessa fallega staðar. Seinnipartinn keyrum við til Mzima springs og förum þar í smá göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.
Keníska ströndin
Dagur 13. Mánudagur 5. júlí - Keníska ströndin
Um morguninn er keyrt af stað frá Tsavo West á lestarstöð.
Lestin leggur af stað kl. 11.00 til Mombasa.
Komið er á hótelið seinnipartinn og tími til að slaka á við laugina.
Dagur 14. Þriðjudagur 6. júlí - Frjáls tími
Frjáls dagur. Hægt er að nota tímann fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl eða fara á kameldýr á ströndinni.
Kvöldmatur á hótelinu eða við förum út að borða á spennandi stað.
Dagur 15. Miðvikudagur 7. júlí - Frjáls tími
Frjáls dagur. Tími til að gera allt það sem ekki náðist að gera daginn áður. Kvöldmatur á hótelinu.
Dagur 16. Föstudagur 8. júlí - Ferðadagur
Hádegisflug til Nairobi. Flug heim til Íslands um kvöldið.
Lending í Keflavík laugardaginn 9. júlí.