Ævintýri í kenía - janúar 2027

Sól, sumar, menning, safarí og strönd!



.

Ógleymanleg ferð sem veitir einstaka innsýn og frábæra upplifun af landi og þjóð

Heildarverð: 660.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi. Aukakostnaður fyrir einn í herbergi er 50.000 kr

“Í byrjun júní fór ég með Ferðasýn til Kenía en það er sú magnaðasta ferð sem ég hef farið í.  Ferðin var mjög vel skipulögð, afslöppuð en mjög fjölbreytt og margt að upplifa þannig að mér leið eins og ferðin hefði staðið yfir í margar vikur!   Söfn, skólaheimsóknir,  safarí, bátsferðir og strönd svo fátt eitt sé nefnt. Ég á pottþétt eftir að fara aftur í ferð með Ferðasýn og mæli 100% með. - Guðný Margrét Hjaltadóttir”

Innifalið:

  • Flug til Kenía.

  • Öll gisting,

  • Allur akstur, lest og innanlandsflug.

  • Hálft fæði í Nairobi,

  • Fullt fæði í Loitoktok og í safaríferð,

  • Hálft fæði á ströndinni.

  • Aðgangseyrir í þjóðgarða

  • Teskoðunarferð

Ekki innifalið:

  • Vegabréfsáritun.

  • Máltíðir á veitingahúsum, á kaffihúsum og í lest.

  • Drykkir á hótelum, þjórfé, aðgangseyrir á söfn, gíraffagarðinn, “Animal orphanage”. Bátsferð og afþreying við ströndina.

Ferðin hefst í sólríku borginni Nairobi. Þar kynnumst við ýmsum hliðum borgarinnar, förum á söfn, heimsækjum te- og kaffiræktarsvæði, áhugaverða veitingastaði og heimsækjum Harvestskólana sem Íslenska barnahjálpin starfrækir. Frá Nairobi er haldið í friðsælu sveitina við rætur Kilimanjaro.
Við rætur Kilimanjaro heimsækjum við framhaldsskóla sem Íslenska barnahjálpin rekur á svæðinu, kynnumst menningu Maasai fólksins og heimsækjum Maasai fjölskyldur. Tveir flottustu þjóðgarðar Kenía verða skoðaðir og ferðin endar á flottu hóteli við hina íðilfögru strönd Indlandshafsins.

Gisting í Nairobi er í stóru gistihúsi sem Íslenska barnahjálpin rekur í fallegu lokuðu hverfi. Gisting á Kilimanjaro er einnig í gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar. Í húsunum er mjög góð aðstaða. Gisting Í Tsavo West og Tsavo East og á ströndinni er á fjögurra stjörnu hótelum. Veðrið á þessum tíma er dásamlegt og búast má við hita á bliinu 24 til 26 gráður á daginn í Nairobi og í Safaríi. Hitinn er um 30 til 32 gráður á daginn á ströndinni.

Fararstjórar: Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár og Samuel Lusiru Gona frá Kenía


Ferðaplan:

Dagur 1. Föstudagur 15. janúar
Flogið seinnipartinn frá Íslandi til Nairobi með Lufthansa, British Airways eða Kenya Airways.

Dagur 2. Laugardagur 16. janúar
Lending í Nairobi.

Nairobi

Dagur 3. Sunnudagur 17. janúar    
Skoðunarferð um Nairobi.

Þjóðminjasafnið, Snákagarðinn og Village market verslunarmiðstöðin.

Dagur 4. Mánudagur 18. janúar     
Við tökum okkur tíma til að kynnast staðnum og heimafólki.
Eftir hádegi verður heimsókn í Harvestskólann sem Íslenska barnahjálpin rekur í fátækrahverfinu Kariobangi. Þar munum við upplifa einstakar kenískar móttökur.

Dagur 5. Þriðjudagur 19. janúar
Harvestskólinn og heimsóknir. Um kvöldið verður farið á Safari park hótelið í stóra grillveislu og danssýningu.

Dagur 6. Miðvikudagur 20. janúar - Karen Langatta svæðið.
Gíraffagarðurinn, Karen Blixen safnið og “The Animal Orphanage”.

Dagur 7. Fimmtudagur 21. janúar - Kiambethu tea farm
Við keyrum út fyrir borgina og heimsækjum hið geysifagra teræktarsvæði þar sem te er ræktað í 2200 metra hæð. Borðum þar þriggja rétta heimagerðan hádegismat á býlinu.

Safarí og Loitoktok

Dagur 8. Föstudagur 22. janúar - Kilimanjaro
Nú verður keyrt til Loitoktok sem er við rætur Kilimanjaro. 
Við gistum í Oldoiyno gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar og borðum þar hádegismat. Eftir hádegi förum við í heimsókn í heimavistarskólann sem rekinn er af Íslensku barnahjálpinni og er þar í göngufæri.

Kvöldmatur heima í húsi og varðeldur.

Dagur 9. Laugardagur 23. janúar
Við keyrum út í byggðirnar og heimsækjum Masaai fólkið á þeirra heimaslóðum. Kvöldmatur og gisting á Oldoyno gistiheimilinu.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 10. Sunnudagur 24. janúar
Amboseli þjóðgarðurinn liggur við rætur Kilimanjaro. Hann er stundum kallaður “fílahöfuðborg heimsins” vegna fjölda fílahjarðanna. Snemma um morguninn keyrum við af stað í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um hádegisbil er matur á hóteli í garðinum og hægt að fara í sundlaug þar. Í eftirmiðdaginn förum við aftur á stjá að skoða dýralífið en þá má oft koma auga á ljón.
Við förum út úr garðinum um kl. 18.30, borðum og gistum á Oldoyno gistiheimilinu.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 11. Mánudagur 25. janúar
Lagt er af stað í Tsavo West þjóðgarðinn snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um hádegi, tékkum inn, fáum okkur mat, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Keníska ströndin - Indlandshafið

Dagur 12. Þriðjudagur 26. janúar
Nú höldum við ferðalaginu áfram niður að Indlandshafinu. 
Þar munum við gista á flottu fjögurra stjörnu hóteli við ströndina með öllum gæðum.

Dagur 13. Miðvikudagur 27. janúar
Slökunardagur á hótelinu. Hægt er að nota tímann til dæmis fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl eða fara á bak á kameldýri á ströndinni.

Dagur 14. Fimmtudagur 28. janúar
Frjáls dagur á ströndinni.

Dagur 15. Föstudagur 29. janúar
Frjáls dagur

Dagur 16. Laugardagur 30. Janúar  
Seinnipartinn tökum við klukkutíma flug til Nairobi. Flug til Íslands um kvöldið.

Dagur 17. Sunnudagur 31. Janúar  
Lending á Íslandi seinnipartinn.