Golf og safarí 24.Jan-7.Feb

Verð miðað við tvo í herbergi: 690.000 kr

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! - Davor Purusic”

Kenía er stórkostlegt land að heimsækja. Í þessari ferð kynnumst við landi og þjóð á einstakan hátt. Við kynnumst höfuðborginni Nairobi, sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar er að finna einstaklega fallega golfvelli, skemmtilega veitingastaði og kaffihús, flott söfn og magnað fjölbreytt mannlíf.   

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gömlum breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa, flottur veitingastaður og bistro við sundlaugina.

Loftslagið í Nairobi er sérlega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 1600-1700 metra hæð og því verður aldrei of heitt. Hitastigið í janúar er frá um 17 gráðum á nóttunni og upp í um 26 gráður eftir hádegi. Þunna loftið í þessari hæð gerir það að verkum að golfkúlan svífur að jafnaði 10 metrum lengra. Það er mikil hefð fyrir golfi í Kenía þar sem Bretar komu með golfið til Kenía og fyrsti golfvöllurinn var byggður árið 1913. Vellirnir eru sérlega fallegir í náttúrulegu umhverfi með skemmtilegum sérkennum og áskorunum. Á öllum völlum er spilað með caddýum sem sjálfir eru golfarar sem hafa mikla reynslu af golfi og völlunum.

Í ferðinni er einnig farið í safarí í þjóðgarðana Amboseli og Tsavo West. Við heimsækjum einnig Loitoktok við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Gist er á fjögurra stjörnu safaríhótelum.

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía. Gisting með hálfu fæði á golfhóteli. Tíu golfhringir með caddy. Allur ferðakostnaður í Nairobi. Gisting með fullu fæði í safarí, safaríbílar, aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Lest til Nairobi.
Aukagjald fyrir einn í herbergi: 120.000 kr. Verð án golfs: 590.000 kr.

Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn, teskoðunarferð og kaffiskoðunarferð.

Fararstjóri eru Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 18 ár.

Ferðaáætlun:

Dagur 1. Laugardagur 24. janúar - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til Evrópuborgar, t.d. Kaupmannahafnar eða Oslo og þaðan til Doha í Qatar og áfram til Nairobi.

Dagur 2. Sunnudagur 25. janúar - Lending í Nairobi
Lending snemma að morgni, farið á hótel og hvíld fram yfir hádegi. Seinnipartinn er fyrsti golfhringurinn. 9 holur eða 18 holur fyrir þá sem vilja.

Dagur 3. Mánudagur 26. janúar - Golf á Windsor
Hringur tvö á Windsor. Eftir golfleik er kjörið að njóta lífsins á veitingastað hótelsins sem er með útsýni yfir völlinn eða slaka á við laugina.

Dagur 4. Þriðjudagur 27. janúar - Golf á Windsor
Hringur þrjú á Windsor fyrir hádegi. Eftir hádegi verður boðið uppá ævintýralega heimsókn í Harvestskólann sem Íslenska barnahjálpin rekur í Nairobi.

Dagur 5. Miðvikudagur 28. janúar - Golf á Karen golf club.
Hringur fjögur á Karen golf club. Við keyrum til suðurhluta Nairobi og prófum Karen golfvöllinn, sem er á landi Karenar Blixen, hins fræga danska rithöfundar. Völlurinn er mjög fallegur hefur verið kosinn vinsælasti golfvöllurinn í Nairobi ár eftir ár. Eftir golfið heimsækjum við Karen Blixen safnið sem er á heimili hennar þar sem Óskarsverðlaunamyndin “Out of Africa” var tekin upp.

Dagur 6. Fimmtudagur 29. janúar - Golf á Muthaiga Golf Club
Hringur fimm - Nú prófum við Muthaiga golfvöllinn, einstaklega glæsilegan völl í fögru skóglendi þar sem Kenya Open er haldið árlega.

Dagur 7. Föstudagur 30. janúar - Golf á Windsor og teræktarsvæði
Þennan morgun er kjörið að fara í ferð á teræktarsvæðin í Tigoni. Þar er borðaður hádegismatur. Seinnipartinn er hringur sex á Windsor.

Dagur 8. Laugardagur 31. janúar - Golf á Windsor og kaffiekruskoðun
Hringur sjö á Windsor. Eftir hádegi förum við í kaffitúr á Hótel Windsor þar sem 500 ekrur af kaffirækt eru á landareigninni. Allt kaffi á Windsor er því ræktað, þurrkað og ristað á staðnum. Við förum í skoðunarferð á kaffiakrana, fræðumst um kaffið, sjáum það ristað og smökkum.

Dagur 9. Sunnudagur 1. Febrúar - Golf á Windsor
Hringur átta á Windsor

Dagur 10. Mánudagur 2. Febrúar - Golf á Muthaiga Golf Club
Hringur níu á Muthaiga golf club

Dagur 11. Þriðjudagur 3. Febrúar - Golf á Windsor
Hringur tíu á Windsor

Safarí og Loitoktok

Dagur 12. Miðvikudagur 4. Febrúar 

Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og þeirra menningu. Við komuna til Loitoktok bíður hádegisverður í Oldoinoyo house við rætur fjallsins. Eftir hádegismat þá heimsækjum við Masaai fólkið og fræðast meira um líf þeirra og menningu. Að þeirri heimsókn lokinni er farið á safari hótel við innganginn á Amboseli þjóðgarðinn. Það er um 30 mínútna akstur þangað. Hótelið er tjaldhótel með lúxustjöldum sem eru eins og hótelherbergi með baðherbergi og öllu tilheyrandi innan tjaldsins.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 13. Fimmtudagur 5. Febrúar
Nú er farið á fætur mjög snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá.  Um morguninn er farin safaríferð um garðinn. Um hádegi er farið aftur á hótelið þar sem er hlaðborð. Einnig er tími til að fara í laugina. Seinnipartinn er svo aftur farið inn í garðinn. Oft er þá tækifæri til að koma auga á ljón.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 14. Föstudagur 6. Febrúar
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Dagur 15. Laugardagur 7. Febrúar

Við förum út úr garðinum og tökum lestina að morgni til Nairobi. Höfum tíma þar til að slaka aðeins á seinnipartinn og undirbúa okkur undir flug að kvöldi, heim til Íslands.
Lent á Íslandi eftir hádegi sunnudaginn 8. febrúar

Bóka ferð