Golf í Kenía 5.-17. Maí 2027

Verð frá: 690.000 kr á mann í tveggja manna herbergi

Viðbótar-safaríferð 17.-19.maí: 150.000 kr á mann

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! Davor Purusic”

Kenía er töfrandi land að heimsækja. Í þessari ferð spilum við frábært golf ásamt því að kynnast við landi og þjóð á einstakan hátt. Við byrjum í höfuðborginni Nairobi, sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar er að finna einstaklega fallega golfvelli, skemmtilega veitingastaði og kaffihús, flott söfn og magnað fjölbreytt mannlíf. Þaðan höldum við að ströndum Indlandshafs á hinn fagra Vipingo Ridge golf club.

Að golfferð lokinni er boðið uppá viðbótar safaríferð í þjóðgarðana Tsavo west og Amboseli. Auk þess heimsækjum við Loitoktok við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku.

Gisting í Nairobi er á PAX Manor, sem er lítið 5 stjörnu hótel, rétt hjá golfvöllunum. PAX Manor var byggt á nýlendutímanum árið 1958. Húsið var gert upp og opnaði sem lúxus hótel árið 2025. Einungis 28 herbergi eru á hótelinu. Á hótelinu er flott líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og veitingastaður.

Loftslagið í Nairobi er sérlega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 1600-1700 metra hæð og því verður aldrei of heitt. Hitastigið í október er frá um 17 gráðum á nóttunni og upp í um 26 gráður eftir hádegi. Þunna loftið í þessari hæð gerir það að verkum að golfkúlan svífur að jafnaði 10 metrum lengra. Það er mikil hefð fyrir golfi í Kenía því Bretar komu með golfið til Kenía og fyrsti golfvöllurinn var byggður þar árið 1913. Vellirnir eru sérlega fallegir í náttúrulegu umhverfi með skemmtilegum sérkennum og áskorunum. Á öllum völlum er spilað með caddýum sem eru sjálfir reyndir golfarar og þekkja vellina út og inn. 

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting eina nótt á leiðinni. Gisting með morgunverði í Nairobi í standardherbergi á PAX Manor. Gisting í villum með morgunverði og hádegisverði í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Gisting með fullu fæði í safaríferð, safaríbílar, aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Innanlandsflug og lest.

Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Tvær máltíðir á dag í Nairobi. Uppfærsla í deluxe herbergi á PAX Manor. Ein máltíð á dag í Vipingo. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn og í skoðunarferðir. 

Aukagjald fyrir einn í herbergi: 100.000 kr.

Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur að mestu búið og starfað í Kenía í 20 ár.

Ferðaáætlun:

Dagur 1 - Miðvikudagur 5. maí - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til London, Amsterdam eða Parísar og gist á hóteli í eina nótt.

Dagur 2 - Fimmtudagur 6. maí - (Uppstigningardagur)
Beint flug til Nairobi að morgni og lending í Kenía að kvöldi.
Gisting á PAX Manor.

Dagur 3 - Föstudagur 7. maí - Hringur eitt á Windsor.
Eftir golfið er kjörið að fara í smá skoðunarferð um næsta nágrenni.

Dagur 4 - Laugardagur 8. maí - Hringur tvö á Windsor.
Þennan dag er í boði að heimsækja hið geysifagra Tigoni teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi

Dagur 5 - Sunnudagur 9. maí - Hringur þrjú á Windsor.
Þennan morgun er boðið uppá safaí í Nairobi national par. Frjáls dagur eftir hádegi. Kjörið að fara í kaffitúr á Hótel Windsor þar sem 500 ekrur af kaffirækt eru á landareigninni. Allt kaffi á Windsor er því ræktað, þurrkað og ristað á staðnum.

Dagur 6 - Mánudagur 10. maí - Hringur fjögur á Muthaiga golf club.
Nú prófum við Muthaiga golfvöllinn, einstaklega glæsilegan völl í fögru skóglendi þar sem Kenya Open er haldið árlega. Eftir hádegið er hægt að heimsækja heimili Karenar Blixen, hins fræga danska rithöfundar. Þar var Óskarsverðlaunamyndin “Out of Africa” var tekin upp.

Dagur 7 - Þriðjudagur 11. maí - Hringur fimm á Muthaiga golf club
Eftir hádegi verður boðið uppá ævintýralega heimsókn í Harvestskólann sem Íslenska barnahjálpin rekur í Nairobi.

Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur í sérlega fögru landslagi, við strönd Indlandshafs og er einn af bestu golfvöllunum í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa sem gefur vellinum mikinn sjarma. Völlurinn hefur PGA vottun og Kenya Womens Open er haldið þar árlega.

Gisting í Vipingo er í sérlega fallegum einkavillum með sundlaug og kokki. Einnig eru þrír sérlega fallegir veitingastaðir á Vipingo sem við munum líka nýta okkur.

Dagur 8 - Miðvikudagur 12. maí - Hringur sex á Vipingo ridge 
Við tökum klukkutíma morgunflug frá Nairobi til Mombasa og ökum þaðan til Vipingo ridge. Koma á gististap á hádegi. Tími fyrir golf eftir hádegi.

Dagur 9 - Fimmtudagur 13. maí - Hringur sjö á Vipingo.

Dagur 10 - Föstudagur 14. mai - Hringur átta á Vipingo.

Dagur 11 - Laugardagur 15. maí - Hringur níu á Vipingo. 

Dagur 12 - Sunnudagur 16. maí - Hringur tíu á Vipingo.
Eftir hádegi tékkum við út og fljúgum til Nairobi þaðan sem flogið er áfram til íslands um kvöldið. Lendum á Íslandi á mánudagsmorgun 17. maí.

Viðbótar safaríferð 16.-19. maí:

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 13 - Sunnudagur 16. maí - safarí í Tsavo West 
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn með lest snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar sérlega fögru landslagi. Gisting er á Serena Kilaguni Lodge, sem er einstakt hótel. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, fylgjumst með dýrlífinu, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn er keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Loitoktok

Dagur 14 - Mánudagur 17. maí
Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og menningu þeirra. Við komuna til Loitoktok bíður hádegisverður í Oldoinoyo house við rætur fjallsins. Eftir hádegi heimsækjum við skóla íslensku barnahjálparinnar og kynnumst þar lífi og menningu nemenda. Kvöldverður og gisting í Oldoinyo house.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 15 - Þriðjudagur 18. maí - Safarí í Amboseli
Við vöknum snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn í safarí. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá. Gist á Oldoinyo house um kvöldið.

Dagur 16 - Miðvikudagur 19. maí - Heimferð
Ferð til Nairobi og flug heim um kvöldið. Lent á Íslandi að degi til fimmtudaginn 20. Maí.

“Kenía er engri lík! Ferðin með Ferðasýn var svo miklu meira en bara golfferð þó vissulega væru vellirnir fyrsta flokks og allar aðstæður til fyrirmyndar. Nálægðin við fíla, gíraffa, sebrahesta og öll hin hitabeltisdýrin í safaríunum var mögnuð upplifun. Áhrifaríkust voru þó kynnin af fólkinu sjálfu, menningu þess og aðstæðum. Keníabúar eru með eindæmum gestrisnir, hlýir, kurteisir og léttir í lund. Börnin stálu hjarta mínu með kurteisi sinni, dugnaði og jákvæðni gagnvart því að deila kenískri menningu með gestunum. Kynni mín af fólkinu í Kenía breytti ekki aðeins skynjun minni á Afríku heldur sjálfri mér. Enginn kemur óbreyttur frá Kenía!  Anna Gunnhildur Ólafsdóttir”