ævintýri í kenía - 17.júní-3.júlí 2026
“Í byrjun júní 2025 fór ég með Ferðasýn til Kenía en það er sú magnaðasta ferð sem ég hef farið í. Ferðin var mjög vel skipulögð, afslöppuð en mjög fjölbreytt og margt að upplifa þannig að mér leið eins og ferðin hefði staðið yfir í margar vikur! Söfn, skólaheimsóknir, safarí, bátsferðir og strönd svo fátt eitt sé nefnt. Ég á pottþétt eftir að fara aftur í ferð með Ferðasýn og mæli 100% með. - Guðný Margrét Hjaltadóttir”
Að ferðast til Kenía er mikið ævintýri. Með áralanga reynslu og innsýn inn í kenískt samfélag bjóðum við upp á fjölbreyttar sérsniðnar ferðir þangað. Ferðirnar okkar eru mikil upplifun og ævintýri sem er samofið náttúrufegurð, dýralífi og menningu Kenía. Ferðamenn fá að kynnast landi og þjóð á einstakan, persónulegan hátt, bæði í höfuðborginni Nairobi og á landsbyggðinni auk þess að kynnast skólastarfi sem Íslenska barnahjálpin rekur.
Ferðin hefst í Nairobi, sem oft er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar kynnumst við ýmsum hliðum borgarinnar, förum á söfn, heimsækju te- og kaffiræktarsvæði, skemmtilega veitingastaði og heimsækjum Harvestskólana sem Íslenska barnahjálpin starfrækir í Nairobi. Gist verður á gistiheimili sem Íslenska barnahjálpin rekur í fallegu lokuðu hverfi. Frá Nairobi er haldið í friðsælu sveitina í Loitoktok við rætur Kilimanjaro þar sem gist verður í nýbyggðu gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar. Þar er mjög góð aðstaða fyrir alla. Hvert herbergi er með sérbaðherbi, stór verönd með ægifögru útsýni, kenískur matur eldaður og varðeldur kveiktur á kvöldin. Við heimsækjum þar framhaldsskóla sem Íslenska barnahjálpin rekur á svæðinu, kynnumst menningu nemenda og siðum og heimsækjum fjölskyldur þeirra. Tveir flottustu þjóðgarðar Kenía verða skoðaðir og ferðin endar á glæsilegu hóteli á ströndinni við Indlandshafið.
Heildarverð: 570.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi.
Aukakostnaður fyrir einn í herbergi á hótelum er 45.000 kr.
Innifalið: Flug til Kenía. Öll gisting, allur akstur, lestir og innanlandsflug. Hálft fæði í Nairobi, fullt fæði í Loitoktok og safaríferð, hálft fæði á ströndinni. Aðgangseyrir í þjóðgarða og söfn.
Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Máltíðir á veitingahúsum, á kaffihúsum og í lest. Drykkir á hótelum, þjórfé og bátsferð.
Fararstjórar: Gunnhildur Gunnarsdóttir, þaulreyndur leiðsögumaður til margra ára og Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 19 ár.
menning-safarí-strönd
Ferðaplan:
Dagur 1. Miðvikudagur 17. júní Flogið frá Íslandi, millilent í evrópskri borg og flogið áfram til Nairobi.
Dagur 2. Fimmtudagur 18. júní Lending í Nairobi.
Gist verður á Harvest gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar í Nairobi.
Nairobi
Dagur 3. Föstudagur 19. júní - Harvest skólinn
Við tökum rólegan morgun og sofum út.
Eftir hádegi er heimsókn í Harvestskólana í Kariobangi þar sem eru nemendur á öllum námsstigum, frá 3ja til 19 ára aldurs. Þar upplifum við keníska menningu beint í æð.
Við hittum fyrir kennara og nemendur sem taka á móti gestum á sinn einstaka keníska máta.
Dagur 4. Laugardagur 20. júní - Kenísk menning
Fyrir hádegi munum við fræðast nánar um keníska menningu. Mismunandi ættbálka, tungumál og siði og venjur.
Eftir hádegismat heimsækjum við heimili nemenda Harvestskólans. Við kynnumst aðstæðum og lífi heimafólks. Um kvöldið förum við út að borða á glæsilegan veitingastað og danssýningu.
Dagur 5. Sunnudagur 21. júní - Sveitaferð til Tigoni
Nú skiptum við um gír, förum aðeins út fyrir borgina og skoðum teakrana í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Á leiðinni sjáum við ólík hverfi og mikla náttúrfegurð steinsnar frá borginni. Teræktarsvæðið er draumi líkast með stórum breiðum af te-ökrum og gróðri. Við heimsækjum býli rekið af þriðju kynslóð Breta. Þar var te fyrst ræktað í Kenía á býlinu og upplifunin er eins og að fara tugi ára aftur í tímann. Hér smökkum við og fræðumst um te og borðum dásamlegan heimagerðan hádegismat úr öllu heimaræktuðu á býlinu. Sjón er sögu ríkari! Eftir heimsóknina er í boði að fara í Village market verslunarmiðstöðina þar sem mikið er af kenísku handverki og fatnaði, en einnig stór matvöruverslun.
Dagur 6. Mánudagur 22. júní - Þjóðminjasafnið
Við byrjum daginn á því að heimsækja þjóðminjasafnið og snákagarðinn. Þjóðminjasafnið er sérlega glæsilegt safn sem gaman er að skoða. Í snákagarðinum skoðum við og fræðumst um allskonar snáka og fleiri dýr. Við borðum á skemmtilegum veitingastað í garðinum.
Dagur 7. Þriðjudagur 23. júní - Karen Langatta svæðið
Við keyrum til suðurhluta borgarinnar og heimsækjum Karen Langatta svæðið. Þar förum við í gíraffagarðinn og á Karen Blixen safnið þar sem hin fræga kvikmynd Out of Africa var tekin upp. Möguleiki að heimsækja einnig Animal orphanage. Við Borðum á góðum veitingastað í hádeginu.
Loitoktok
Dagur 8. Miðvikudagur 24. júní - Loitokitok
Leggjum snemma af stað með lest til Loitoktok, þar sem við munum dvelja í Oldonyo gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar. Eftir hádegi förum við í heimsókn í heimavistarskólann í Loitoktok. Í skólanum eru 120 nemendur á aldrinum 15-19 ára. Í Loitoktok býr Masaai fólkið. Það hefur sína eigin menningu og viðhorf, gjörólík menningunni í Nairobi. Nemendur koma þar í skóla þar sem kennt er á allt öðrum tungumálum en þeirra eigin. Ýmis menningarleg áhrif setja líka strik í reikninginn þegar kemur að menntun en aðrir menningarþættir létta líka lífið.
Dagur 9. Fimmtudagur 25. júní - Masaai fólkið
Um morguninn förum við í heimsóknir út í sveitirnar til nemenda og foreldra þeirra. Við kynnumst lífi og menningu Masaai fólksins. Hér hefur lífið ekki mikið breyst í margar aldir. Um kvöldið er í boði að taka þátt í kvöldsamkomu nemenda Harvestskólans í Loitoktok sem er heilmikil upplifun.
Dagur 10. Föstudagur 26. júní - Skólinn
Frjáls dagur í Loitoktok. Það er kjörið að skoða sig um í nágrenninu, fara á markaðinn í bænum, keyra upp að landamaærum Tanzaníu og njóta þessa fallega staðar.
Safarí: Amboseli Þjóðgarðurinn
Dagur 11. Laugardagur 27. júní - Amboseli
Snemma að morgni er keyrt af stað í Amboseli þjóðgarðinn sem liggur við rætur Kilimanjaro og er stundum kallaður “fílahöfuðborg heimsins”. Um morguninn förum við í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um hádegisbil förum við á hótelið og tékkum okkur inn og fáum hlaðborð í hádeginu. Seinna í eftirmiðdaginn förum við aftur á stjá að skoða dýralífið og reynum að koma auga á ljón.
Tsavo West þjóðgarðurinn
Dagur 12. Sunnudagur 28. júní - Tsavo West
Að morgni er lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um hádegi, fáum okkur hádegismat, förum í laugina og njótum þessa fallega staðar. Seinnipartinn keyrum við til Mzima springs og förum þar í smá göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.
Keníska ströndin
Dagur 13. Mánudagur 29. júní - Keníska ströndin
Um morguninn er keyrt af stað frá Tsavo West á lestarstöð. Lestin leggur af stað kl.11.00 til Mombasa.
Komið er á hótelið seinnipartinn og tími til að slaka á við laugina.
Dagur 14. Þriðjudagur 30. júní - Frjáls tími
Frjáls dagur. Hægt er að nota tímann fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl eða fara á kameldýr á ströndinni.
Kvöldmatur á hótelinu eða við förum út að borða á spennandi stað.
Dagur 15. Miðvikudagur 1. júlí - Frjáls tími
Frjáls dagur. Tími til að gera allt það sem ekki náðist að gera daginn áður. Kvöldmatur á hótelinu.
Dagur 16. Föstudagur 2. júlí - Ferðadagur
Hádegisflug til Nairobi. Flug heim til Íslands um kvöldið.
Lending í Keflavík laugardaginn 3. júlí.