Golf og safarí 26.desember 2026 - 9.janúar 2027

Verð: 790.000 kr á mann í tveggja manna herbergi og 890.000 kr fyrir einstaklingsherbergi. Verð án golfs: 690.000 kr.

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting í London. Gisting með hálfu fæði á golfhóteli Nairobi og í Vipingo. Allt að tíu 18 holu golfhringir með caddy og golfbíl í Vipingo. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Gisting með fullu fæði í safarí, safaríbílar, aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Innanlandsflug og lest. Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi og Vipingo. Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn, teskoðunarferð og kaffiskoðunarferð. Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur að mestu búið og starfað í Kenía í 19 ár.

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! Davor Purusic”

Kenía er töfrandi land að heimsækja. Við byrjum í höfuðborginni Nairobi, sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Þar er að finna einstaklega fallega golfvelli, skemmtilega veitingastaði og kaffihús, flott söfn og magnað fjölbreytt mannlíf. Þaðan höldum við í safarí í þjóðgarðana Tsavo west og Amboseli. Auk þess heimsækjum við Loitoktok við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Við endum svo á hinum fagra Vipingo Ridge golf club sem staðsettur er við strönd Indlandshafs. Þessi ferð hentar einnig þeim sem ekki spila golf.

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gamaldags breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og þrír veitingastaðir. Hægt er að spila með bæði caddy og golfbíl.

Ferðaáætlun:

Dagur 1 - Laugardagur 26. desember - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til London með British Airways og gist á hóteli í eina nótt.

Dagur 2 - Sunnudagur 27. desember - Flug til Nairobi
Beint flug til Nairobi að morgni og lending í Kenía að kvöldi.
Gisting á Windsor Golf Hotel.

Dagur 3 - Mánudagur 28. desember - Hringur eitt á Windsor.
Eftir golfið er kjörið að fara í smá skoðunarferð um næsta nágrenni.

Dagur 4 - Þriðjudagur 29. desember - Hringur tvö á Muthaiga.
Nú prófum við Muthaiga golfvöllinn, einstaklega glæsilegan völl í fögru skóglendi þar sem Kenya Open er haldið árlega. Eftir hádegi er kjörið að fara í kaffitúr á Hótel Windsor þar sem 500 ekrur af kaffirækt eru á landareigninni. Allt kaffi á Windsor er því ræktað, þurrkað og ristað á staðnum. Einnig er hægt að slaka á við laugina eða fara í spa.

Dagur 5 - Miðvikudagur 30. desember - Hringur þrjú á Windsor.
Eftir hádegi keyrum við til suðurhluta Nairobi og heimsækjum heimili Karenar Blixen, hins fræga danska rithöfundar. Þar var Óskarsverðlaunamyndin “Out of Africa” var tekin upp.

Dagur 6 - Fimmtudagur 31. desember - Hringur fjögur á Windsor - Tigoni svæðið
Þennan dag ætlum að við að heimsækja hið geysifagra teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Því verða spilaðar tvisvar sinnum níu holur. Fyrst að morgni og svo seinnipartinn. Hátíðarkvöldverður um kvöldið.

Dagur 7 - Föstudagur 1. Janúar-Tigoni svæðið - Hringur fimm á Windsor
Frjáls dagur eftir hádegi.

Loitoktok

Dagur 8. Laugardagur 2. janúar - Loitoktok
Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og menningu þeirra. Við komuna til Loitoktok bíður hádegisverður í Oldoinoyo house við rætur fjallsins. Eftir hádegi heimsækjum við skóla íslensku barnahjálparinnar og kynnumst þar lífi og menningu nemenda. Kvöldverður og gisting í Oldoinyo house. Varðeldur um kvöldið.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 9 - sunnudagur 3. janúar - Safarí í Amboseli
Við vöknum snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn í safarí. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá. Gist á Oldoinyo house um kvöldið.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 10 - mánudagur 4. janúar - safarí í Tsavo West 
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn með lest snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar sérlega fögru landslagi. Gisting er á Serena Kilaguni Lodge, sem er einstakt hótel. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, fylgjumst með dýrlífinu, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn er keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur í sérlega fögru landslagi, við strönd Indlandshafs og er einn af bestu golfvöllunum í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa sem gefur vellinum mikinn sjarma. Hann hefur PGA vottun og Kenya Womens Open er haldið þar árlega.

Dagur 11 - Þriðjudagur 5. janúar- Vipingo ridge 
Lagt af stað úr Tsavo West þjóðgarðinun og lestin tekin í áttina að ströndinni. Ekið síðasta spölin og koma á Vipingo um kl 15:30. Gisting er í flottum villum á golfvellinum með einkasundlaug.

Dagur 12 - miðvikudagur 6. janúar - Hringur sex á Vipingo.
Við njótum staðarins

Dagur 13 - Fimmtdagur 7. janúar - Hringur sjö á Vipingo.
Við tökum daginn snemma og klárum 18 holur. Við slökum á seinnipartinn og förum út að borða um kvöldið.

Dagur 14 - Föstudagur 8. janúar - Hringur átta á Vipingo.
Seinnipartinn er kjörið að skella sér á ströndina og skoða nágrennið.

Dagur 15 - Laugardagur 9. Janúar - Hringur níu á Vipingo.
Eftir hádegi tékkum við út og fljúgum til Nairobi þaðan sem flogið er áfram til íslands um kvöldið í gegnum London. Lendum á Íslandi á mánudagsmorgun 19. október.