afrísk sól,safarí og strönd 26.des-9.jan. 2026

Stórkostleg ferð til Kenía fyrir alla fjölskylduna sem býður uppá dásamlegt veður, mikinn lúxus, skemmtileg ævintýri og safarí!

Ferðin byrjar í Nairobi þar sem gist er á hinu glæsilega hóteli Windsor golfresort. Þaðan er farið í tveggja daga ferð til lake Naivasha og haldið í þjóðgarðana Amboseli og Tsavo west við rætur Kilimanjaro. Ferðin endar svo á fjórum dögum á ströndinni við Indlanshafið.

Verð: 790.000 kr á mann í tveggja manna herbergi. Auka 90.000 kr fyrir einstaklingsherbergi.

Samhliða þessari ferð er einnig skipulögð ferð fyrir golfara sem hentar að bóka saman!

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku. Gisting í London. Gisting með hálfu fæði í Nairobi, Naivasha og Mombasa. Gisting með fullu fæði í safarí og safaríbílar. Aðgangseyrir í þrjá þjóðgarða. Aðgangseyrir á söfn og teskoðunarferð, bátsferð á Naivasha og annað sem er tekið fram í ferðaáætlun. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Þar með talið innanlandsflug og lest.

Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi, Naivasha og Mombasa. Drykkir og þjórfé.  

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gamaldags breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og þrír veitingastaðir. Hægt er að spila með bæði caddy og golfbíl.

Gisting á Mombasa við Indlandshafið er á fjögurra stjörnu hótelum eða í einkavillum á Vipingo með sundlaug.

Gisting í safarí er í einkavillu í Loitoktok og safarí hóteli í Tsavo west

Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár.

Ferðaáætlun:

Dagur 1- Laugardagur 26. desember - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til London með British Airways og gist á hóteli í eina nótt.

Dagur 2 - Sunnudagur 27. desember - Flug til Nairobi
Beint flug til Nairobi að morgni og lending í Kenía að kvöldi.
Gisting á Windsor Golf Hotel.

Dagur 3 - Mánudagur 28. desember - Karen svæðið
Heimsókn á Karen blixen safnið, gíraffagarðinn og the animal orphanage.

Dagur 4 - Þriðjudagur 29. desember - Lake Naivasha.
Eikið til lake Naivasha þar sem farið er í göngu safarí og bátsferð um vatnið. Gist a glæsilegu hóteli við vatnið.

Dagur 5 - Miðvikudagur 30. desember - Lake Naivasha.
Farið í Hellsgate þjóðgarðinn sem umhverfið í Lion King er byggt á. Þar heimsækjum við í Olkaria Spa sem er Keníska bláa lónið.

Dagur 6 - Fimmtudagur 31. desember - Tigoni svæðið
Heimsókn á hið geysifagra teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Sérstakur hátíðarkvöldverður um kvöldið.

Dagur 7 - Föstudagur 1. janúar - Nairobi - Windsor ‍ ‍
Frjáls dagur í Nairobi

Kilimanjaro - Safarí

Dagur 8 - Laugardagur 2. janúar
Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og menningu þeirra. Við komuna til Loitoktok bíður hádegisverður í Loitoktok húsinu við rætur fjallsins. Eftir hádegi kynnumst við Maasai menningunni. Gisting á safari hóteli.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 9. Sunnudagur 3. janúar - Safarí í Amboseli
Við vöknum snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn í safarí. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá. Gist á Oldoinyo house um kvöldið.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 10 - mánudagur 4. janúar - Safarí í Tsavo West 
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn með lest snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar sérlega fögru landslagi. Gisting er á Serena Kilaguni Lodge, sem er einstakt hótel. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, fylgjumst með dýrlífinu, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn er keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

indlandshafið - Mombasa

Dagur 11 - Þriðjudagur 5. Janúar - ströndin 
Við höldum ferðalaginu áfram niður að Indlandshafinu. 
Þar munum við gista á fjögurra stjörnu hótelum við ströndina með öllum gæðum
. Hægt er að velja á milli tveggja hótela. Fyrir þá sem eru að ferðast með golfurum þá er val að gista í flottum villum með einkasundlaug á Vipingo Ridge.

Dagur 12 - Miðvikudagur 6. Janúar - ströndin
Frjáls dagur. Hægt er að nota tímann til dæmis fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl.

Dagur 13 - Fimmtudagur 7. Janúar - ströndin
Frjáls dagur. Hægt sólseturs sigling um kvöldið.

Dagur 14 - Föstudagur 8. Janúar - ströndin
Frjáls dagur.

Dagur 15 - Laugardagur 9. Janúar - lokadagur
Eftir hádegi tékkum við út og fljúgum til Nairobi þaðan sem flogið er áfram til íslands um kvöldið í gegnum London. Lendum á Íslandi sunnudaginn 10. janúar

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! Davor Purusic”

Vipingo Villas

Mombasa Prideinn Paradise resort

Mombasa Voyager resort