Golf, safarí og afrísk sól 26.des - 9.jan 2026

Stórkostleg golfferð sem býður uppá dásamlegt veður, mikinn lúxus, skemmtileg ævintýri og frábært golf!

Ferðin byrjar í Nairobi þar sem gist er á hinu glæsilega hótel Windsor Golf Resort. Þaðan er haldið í þjóðgarðana Amboseli og Tsavo West við rætur Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Ferðin endar svo á hinum fagra Vipingo Ridge Golf Club við Indlanshafið.

Verð: 830.000 kr á mann í tveggja manna herbergi og 900.000 kr fyrir einstaklingsherbergi.

Samhliða þessari ferð er einnig skipulögð ævintýraferð fyrir alla fjölskylduna sem hægt er að bóka saman!

Innifalið: Flug frá Íslandi til Kenía með einni tösku og golfsetti. Gisting í London. Gisting með hálfu fæði á golfhóteli Nairobi og í Vipingo. Allt að níu 18 holu golfhringir með caddy og golfbíl í Vipingo. Allur ferðakostnaður innanlands í Kenía. Gisting með fullu fæði í safarí, safaríbílar, aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Innanlandsflug og lestar.

Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Ein máltíð á dag í Nairobi og Vipingo.
Drykkir og þjórfé. Aðgangseyrir á söfn, teskoðunarferð og kaffiskoðunarferð. 

Fararstjóri er Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 20 ár.

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf Hotel, sem er 4 stjörnu hótel, hannað í gamaldags breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa og þrír veitingastaðir og kaffiræktarsvæði. Hægt er að spila með bæði caddy og golfbíl.

Gisting á Vipingo Ridge við Indlandshafið er í einkavillum með sundlaug.

Gisting í safarí er í einkavillu í Loitoktok og safarí hóteli í Tsavo West.

Ferðaáætlun:

Dagur 1- Laugardagur 26. desember - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til London og gist á hóteli í eina nótt.

Dagur 2 - Sunnudagur 27. desember - Flug til Nairobi
Beint flug til Nairobi að morgni og lending í Kenía að kvöldi.
Gisting á Windsor Golf Hotel.

Dagur 3 - Mánudagur 28. desember - Hringur eitt á Windsor.
Eftir golfið er boðið uppá ferð á Karen Blixen safnið og “the Animal Orphanage”.

Dagur 4 - Þriðjudagur 29. desember - Hringur tvö á Muthaiga golf club.
Muthaiga golfvöllurinn er einstaklega glæsilegur völlur í fögru skóglendi þar sem Kenya Open er haldið árlega.

Dagur 5 - Miðvikudagur 30. desember - Hringur þrjú á Windsor.
Frjáls dagur eftir hádegi.

Dagur 6 - Fimmtudagur 31. desember - Tigoni svæðið - Hringur fjögur á Windsor.
Heimsókn á hið geysifagra teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Því verða spilaðar tvisvar sinnum níu holur að morgni og svo seinnipartinn.
Sérstakur hátíðarkvöldverður um kvöldið.

Dagur 7 - Föstudagur 1. janúar - - Hringur fimm á Windsor ‍ ‍
Frjáls dagur eftir hádegi.

Kilimanjaro - Safarí

Dagur 8 - Laugardagur 2. janúar
Um morguninn keyrum við til Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Ef vel viðrar þá sést fjallið vel. Þar býr Masaai fólkið og það er heilmikil upplifun að kynnast heimafólki og menningu þeirra. Við komuna til Loitoktok bíður okkar hádegisverður í Oldoinoyo gistiheimilinu við rætur fjallsins. Eftir hádegi heimsækjum við skóla Íslensku barnahjálparinnar og kynnumst þar lífi og menningu nemenda. Kvöldverður og gisting í Oldoinyo gistiheimilinu. Varðeldur um kvöldið.

Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 9. Sunnudagur 3. janúar - Safarí í Amboseli
Við vöknum snemma til að fara inn í Amboseli þjóðgarðinn í safarí. Amboseli er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins vegna stóru fílahjarðanna sem þar halda til. Hann er líka frægur fyrir gríðarlega fjölbreytt dýralíf af öllu tagi og það er mjög margt að sjá. Gist á Oldoinyo gistiheimilinu um kvöldið.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 10 - mánudagur 4. janúar - Safarí í Tsavo West 
Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn með lest snemma að morgni. Tsavo West er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar sérlega fögru landslagi. Gisting er á Serena Kilaguni Lodge, sem er einstakt hótel. Við komum á hótelið um hádegi og fáum okkur mat, fylgjumst með dýrlífinu, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Í eftirmiðdaginn er keyrt við til Mzima Springs og farið í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur í sérlega fögru landslagi, við strönd Indlandshafs og er einn af bestu golfvöllunum í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og algengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa sem gefur vellinum mikinn sjarma. Hann hefur PGA vottun og Kenya Womens Open er haldið þar árlega.

Dagur 11 - Þriðjudagur 5. janúar - Vipingo Ridge 
Lagt af stað úr Tsavo West þjóðgarðinum og lestin tekin í áttina að ströndinni.
Ekið síðasta spölin og koma á Vipingo í eftirmiðdaginn.
Gisting er í flottum villum á golfvellinum með einkasundlaug.

Dagur 12 - Miðvikudagur 6. janúar - Hringur sex á Vipingo.
Frjáls dagur

Dagur 13 - Fimmtudagur 7. janúar - Hringur sjö á Vipingo.
Við tökum daginn snemma og klárum 18 holur. Við slökum á seinnipartinn og hægt að fara út að borða um kvöldið.

Dagur 14 - Föstudagur 8. janúar - Hringur átta á Vipingo.
Fyrir hádegi er spilað golf. Seinnipartinn er kjörið að skella sér á ströndina og skoða nágrennið.

Dagur 15 - Laugardagur 9. janúar - Hringur níu á Vipingo.
Eftir hádegi tékkum við út og fljúgum til Nairobi þaðan sem flogið er áfram til Íslands um kvöldið í gegnum London. Lending á Íslandi sunnudaginn 10. janúar

“Ferðin með Ferðasýn til Kenía var algjörlega mögnuð. Persónuleg fararstjórn Þórunnar og Samma veitti okkur ómetanlega innsýn inn í menninguna og aðstæður fólks í landinu. Golfvellirnir koma á óvart fyrir að vera á pari við bestu golfvelli í Evrópu. Heimafólkið var alúðlegt, kurteist og alltaf til í að hjálpa. Hitinn var aldrei óþægilegur og maturinn var alltaf frábær hvort sem hann var dæmigerður kenískur eða evrópskur. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær ég fer aftur með Ferðasýn til Kenía! Davor Purusic”